Sjóðheitar fréttir... as if, það er af sem áður var. Hér unum við okkur bara í rólegheitum fjölskyldulífsins og ég er orðin svo ráðsett og ábyrg að sorinn er á pásu, og það er eitthvað minna gaman að skrifa helgispjöll.
Flökkueðlið er nú samt farið að segja til sín aftur (hver veit nema kjafturinn lifni við að nýju, ég er öll að verða eðlileg) og ég var að verulega refsa visakortinu og um leið styrkja express (sem er með frítt fyrir ungabörn og eðlilegt breytingagjald og breytanleg fargjöld, púh á Icelandair). London í viku í næsta mánuði við fjölskyldan, það væri óskandi að það væri skemmtiferð. En verður bætt upp með 9 daga skemmtiferð til Köben í maí með skemmtilegum stelpum og börnum, makar verða með síðustu dagana. Á sama að tíma að ári deitið verður svo í NY i haust en það verða bara við ástmaður. Fjölskyldumeðlimir geta byrjað að slást um að fá prinsessuna í nokkra daga. Fáum franska vini í viku í sumar og mig langar með þau vestur, auk þess hef ég tryggt tjaldvagn fyrir landsmótið (er víst orðin of fín fyrir tjald) og skemmtilegustu fréttir vikunnar eru þær að bíllinn okkar er kominn sem svooo getur dregið tjaldvagninn, með nýrri leðurlykt og ég er ekki frá því að mér finnist ég eitthvað minna herfuleg þegar ég ek um á þessum eðalgrip en ég annars upplifi mig þessa dagana. Helst í fréttum er samt það að ég er um það bil að fara yfir um.
Embla María er að verða eins og fermingarbarn. Rifnar út, það er skoðun á föstudag og ég hlakka til að fá staðfest að hún braggist vel. Hún er farin slá í dótið sitt í ömmustólnum (er nú ekki viss í að hún fatti það), einstaka sinnum skríkir hún þegar hún er mjög kát sem er alveg nýtt. Algjört yndi og fer sjálf að sofa á kvöldin og sefur allar nætur - með einum sjúss þó. Við vorum í Giljagaur síðustu helgi og hún kippti sér ekkert upp við nýjan stað - bara hélt sinni rútínu. Eitt á hún þó sameiginlegt með mér, og það er það eina sem ég hef fundið hingað til, en það er að henni finnst afskaplega gott að borða en mikið vont að vera södd. Litla skinnið á það til að taka heilu rembingskvöldin alveg þannig að við erum farin að rembast með henni og þá er ekki allra að tjónka við hana. Hún er nú líka með smá mömmusýki - mér finnst það bera vott um greind. Ef að bara einn getur fætt þig, þá hlýturðu að halda þig við hann.
Þar með er tilkynningaskyldunni lokið í bili. Get þó bætt við að húsið gengur vel núna eftir leiðinda veður og er risið - nú er bara að loka því og byrja inni. Myndirnar eru af heimasætunni sína listir sínar á 8. viku, óróin næstum jafn skemmtilegur og ég þessa dagana ;), með Söru í bústað, smá sýnishorn af kvöldmatartíma á heimilinu og fleira og stöðuna á Dimmu í dag 27. feb.
5 comments:
Sé að þú hefur þann eiginlega að dreifa huganum á meðan þú átt að vera að læra hehehe bara búin að plana fullt gaman...
Það það verður stuð á landsmótinu í sumar :) Hlakka til að koma í kaffi til þín í tjaldvagninn. Þar sem við gistum bara upp í bústað er gott að hafa svona fínt skjól á svæðinu :):)
Vá ekkert smá spennandi ár framundan hjá fjölskyldunni:)
Hlakka til að sjá myndir:)
Kv.Íris Dögg
Hlakka mikið til að sjá nýjar myndir í ljósi þess að ég er búin að hitta Emblu Maríu (og ykkur) alltof sjaldan undanfarið.
Kv. Hulda
Takk aftur fyrir kvöldið um daginn, það var ekkert smá kósý. Ástmaður þinn er snilldarkokkur, svo ekki sé minnst á hvað hann er yndæll í þokkabót. Hlakka til að kíkja á húsið ykkar. Verðum svo í bandi í sambandi við frænkuhitting fljótlega.
Kveðja, Día og co.
Sætasta emblulína bína..
Takk fyrir samveruna í morgun.. það var svo gaman að hafa þig og finna lyktina af þér og knúsa þig og hugga þig og skipta á þér.. og bara allt:) þú ert sætust sætalína!
knús í kremju..
Post a Comment