
Einkirningasótt er ágæt fyrir það að hún er skaðlaus svona í flestum tilvikum. Það er samt glaaatað að fá svoleiðis og ég gæti ælt á síðustu ca 3 vikur eða svo... til dæmis er sóttin ein af herpes vírusfjlsk, svo hún ergir restina af familiíunni ef hún býr hjá þér - ég er búin að fá svona 17 frunsur - sem er alltaf jafn æðislegt og eykur sjálfstraust og sjálfsánægju. Stöðug þreyta er annað einkenni, sem hentar vel með brjóstagjöf þrisvar á nóttu með tilheyrandi svefnraski. Ógleði og ælur, maður kemst svo sem yfir það, en það er samt pínu erfitt þegar maður er mesta ælufóbíumanneskja í veröldinni :( (plús nýbúin að vera ólétt með tilheyrandi ógleði gleði, sanngjarnt). Hár hiti, ég meina 4 dagir í móki í rúminu, það er alltaf gaman að rússa smá er það ekki? Útbrot, gott að það er alltaf skítakuldi hérna og maður hvort sem er dúðaður frá toppi til táar. Liðverkir, það var hressandi að vakna einn daginn og geta næstum bara hreyft augun, alltaf gott að verða smá hræddur. Hausverkur, kætir hressir og bætir, sérstaklega þegar maður reynir að forðast lyf svona til þess að druggera ekki barnið. Svo er bara töff að vera með fullt af bólgnum eitlum. Það besta við þetta allt saman hlýtur samt að vera að einkennin koma öll fram aðskilin svo þú færð að njóta hvers og eins sérstaklega.
Jæja vol dagsins er í boði prjónaklúbbsins Vol og Væls sem stofnaður var í Haga sumarið 1988 og nefndur af mæðrum prjónaklúbbsmeðlima. Ég get nú samt glatt mig yfir því að helsta einkenni sóttarinnar er biluð hálsbólga og ég er ekki með kirtla :) Plús, að ég held að þetta hljóti að vera búið núna. Svo er líka sól :)
P.S munið þið eftir Charlie :D Það fannst þetta að vísu engum fyndið nema mér!
2 comments:
Æiiiiiiiiiiii klæðir þig nú sammt ekki sérlega vel að vera með vol og væl.Þetta fer allt að lagast. Gott að þú sérð sólina.LoveY mamms
Hæ sætust.... vonandi ertu að hressast. Unginn þinn er svoooo sætur... ég verð að fara að sjá hana live. Verð bara að segja að mér finnst Charlie snilld... tær snilld. Kveðja úr norðri, Andrea
Post a Comment