Það er komið svona vor í mig...er að deyja mig langar svo á hestbak, ætla að byrja að ríða út aftur í vikunni. Þarf bara að ná ástmanni aðeins fyrr heim úr vinnu og skella mér svo. Hann getur kannski skokkað með frumburðinn á meðan í ultimate skokk/hjólakerrunni sem birtist hérna heima í vikunni...Svo langar mig alveg rosalega í bjór og hvítvín. LOKSINS. Var farin að halda að ég yrði einhver afturbata _ _ _ _ eftir þetta allt saman.
Er á leiðinni í ungasundið sem er Emblu Maríu ekki alveg að skapi. Ef að kennarinn nálgast hana setur hún upp stærstu skeifu í heiminum, verður fjólublá í framan og öskrar svo. Var svona aðeins að jafna sig í lok síðasta tíma, enda fékk hún að standa (sem er algjört uppáhald) blýsperrt og gnæfa yfir allar. Tek með myndavélina núna svo þið getið glaðst með mér. Ég er svo skemmtilega viss um að öllum finnist barnið jafn æðisleg og mér og viti því ekkert skemmtilegra en að skoða myndir af henni.
Svo vantar mig alveg ofboðslega dagmömmu frá og með september. Hún þarf að vera í hvörfunum í Kópavogi ef einhver er vel tengdur. Það er oooof stutt í september, hvernig fer tíminn að því að fljúga svona? Plús að ég byrja að vinna í ágúst sem er enn styttra í. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá réð ég mig áfram á Fiskistofu, en skipti alveg um starf og er bara nokkuð spennt. Alltaf gaman að takast á við ný verkefni og ekki verra að vera meira í alþjóðlegum málum en áður svona fyrst ég á annað borð skellti mér í þetta mastersnám. Af því er helst að frétta að þær einkunnir sem eru komnar eru bara ljómandi fínar og ég er ennþá clueless gagnvart mastersverkefninu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Mér finnst rooosalega gaman að skoða myndir af prinsessunni:) byrjuð að synda og allt! svona verður þetta alltaf.. mjög fljótt að líða! maður nær varla að fylgjast með;)
sammála fyrri ræðumanni, það er bæði gaman og alveg nauðsynlegt að þú póstir hingað inn myndum af prinsessunni!!
Ég get ekki tekið undir þetta með að tíminn líði hratt, allavega ekki þessa dagana og vikurnar. Kannski ekki alveg að marka mig hehe :)
Mæli með reiðtúrum, ég get ekki beðið eftir að taka hrossin upp í sveit og skella mér á bak þegar ég er búin að unga varginum mínum út.
Til hamingju með nýja starfið :)
Post a Comment