Sunday, April 13, 2008

Fór með myndavélina battlausa í ungasundið...ég sem hélt ég væri komin i lag. Bæti úr þessu á fimmtudag. En hérna kemur myndapóstur sem gæti tekið nokkrar heimsóknir að fara í gegnum en ætti að kæta ömmuna í Lækjarsmáranum "sem finnst ég eigi að vera með myndasíðu" ;) Ég get alveg verið duglegri hér bara. Get glatt ykkur með því að ég fór bæði á hestbak og að skemmta mér um helgina og ég kann bæði ennþá.

Við fáum Sögu lánaða reglulega til okkar. Skellti mér þvottahúsið með frænkurnar, eplið var tuðandi en Saga að reyna að hafa ofan af fyrir henni...svona þangað til hún nennti ekki meira. Þvílík rúsína ;)


Upp í Giljagaur um páskana að baða sig í athyglinni.

Með Bjössa á páskadag. Þar sem hún helst vill vera...haldið á lofti einhversstaðar

Ca. 5 mínútum áður en hún velti ser af maga yfir á bak í fyrsta sinn (23.mars). Síðan þá hefur hún bara velt sér á sunnudögum..en nokkrum sinnum á dag þó ;)

Krulla litla að koma úr baði. Annars er hárið að hrynja af hnakkanum á henn núna. Gæti grenjað þegar ég tek hana upp úr rúminu og sé það sem er eftir.

Embla María er krónískt hissa...og stöðugt slefandi.

Hér er verið að dást að Sölva Hrafni Arnórssyni, nýjasta meðlim dúddúrúddu.

Að gera æfingarnar sínar, er alltaf að verða duglegri og duglegri á maganum.

Reiðist samt ennþá frekar fljótt sé henni ekki bjargað yfir á bakið (nema á sunnudögum, þá veltir hún sér sjálf)





Og að lokum smá syrpa af prinsessunni á leikteppinu sínu sem er í aðalhlutverki þessa dagana. Læt verulega langdregið myndband af engu en samt svo miklu fylgja með...svona fyrir pabba minn ef hann kíkir hérna inn.

6 comments:

7fn said...

JIIII hvað mér finnst barnið mitt vera fullorðið eitthvað:)
hugsar mjög vel um litlu frænku sína, enda eruði mæðgur í uppáhaldi!

Um daginn spurði ég hana hvar embla væri. þá blaðraði hún eitthvað og sagði svo Risa og blaðraði meira:D tengir ykkur alveg saman.. magnað;)

knús og mega sakn.. kíkjum í vikunni

Anonymous said...

Takk, takk,þetta dugar smá....LoveY mamma

María Kristín said...

Gaman að fá myndablogg:) halda því áfram svo:)

Það var svo gaman að geta passað fyrir ykkur á laugardaginn:) hún er alltaf svo góð hjá okkur 7.9.13!!;)

Anonymous said...

Ánægð með ömmuna í Lækjarsmáranum! Æðislegt að fá reglulega myndir hingað inn af litla súper krúttinu.

Vona svo að Embla María mæti í saumó á miðvikudaginn:)

Kv. Hulda

Helga Sigurrós said...

7fn...alveg sammála, Saga stækkar eitthvað svo mikið við hliðin á henni. Takk fyrir hjálpina í dag :)

María: Takk líka fyrir pössunina, það styttist í næturpassanir!

Mor: ætlaði að taka fleiri myndir á morgun í sundinu en verði ég ekki orðin hitalaus þá verður ástmaður einn á ferð þar.

Húlda: EM er allri lokið svona upp úr hálfníu, geri ykkur ekki að mæta meða hana alveg að sofna. OOOg glatað að missa af ykkur!

Anonymous said...

já minnsta.. bara takk fyrir að leyfa okkur mæðgum að passa hana..:D
Hún er svo góð að það hálfa væri nóg:) sp. um að hafa vöruskipti á laug, ef þú verður orðin hress.. annars förum við mæðgur bara í íþróttaskólann..:D

7fn