Friday, May 2, 2008

Það er alltaf verið að spyrja mig hvort það sé ekki mikil viðbrigði að eiga barn- ég skil ekki af hverju, en það er það svo alls ekki. Þetta gerist einhvern vegin allt bara fáránlega eðlilega og er ótrúlega sjálfsagt. Í dag er Embla María búin að vera til í 4 mánuði og ég er bara búin að finna einn galla sem er tvíþættur, annars vegar draslið sem fylgir inní íbúðinni og hins vegar þessi endalausi farangur ef maður vogar sér út úr húsi - en þetta venst svo það er vel yfirstíganlegt. Annars var aftur kvartað yfir myndaleysi, mér finnst ég alveg nýbúin að hlaða inn. Byrjum á myndum af fólki að fylgjast með Liverpool tapa.


Ekkert yndislegra en eplið nývöknuð, annarsvegar með far by uppáhaldsdótið sem er blómið frá Huldu og hins vegar að sleikja sólina út í vagni.


Og með gestum, þessi fína mynd af afa með opin augun. Ragnar Bjarki kom svo í smá pössun og þau þurftu að skoða hvort annað vel. Munurinn á þeim sannar næstum "árið" sem er á milli þeirra....litla örverpið mitt ;)



Búin að finna á sér táslurnar, mikið sport.

Embla María og mamma að knúsast, þarf einhvern tíma þegar mamma stoppar almennilega við að taka seríu af þeim saman.

Heldur ennþá alltaf í eitthvað þegar að hún sefur, ef það er ekki rimlinn a vöggunni þá það sem hún finnur laust nálægt sér.

Saga þarf að prófa líka, það er bara fyndið að fylgjast með þeim saman. Alltaf samt ótrúlega góð við litla skrípið :)


Viðbót 3.maí: Dóttirin eltist og þroskaðist um allt of mikið núna rétt áðan þegar við foreldrareiningar lögðum hana til svefns í barnarúminu í fyrsta sinn. Það var eiginlega bara pínu trist að taka vögguna út...

4 comments:

guess who said...

Alltaf skemmtilegt að skoða myndir af Emblu. Ekki síðra að sjá mynd af Ævari Ástmann með gloss:)

Anonymous said...

Já hann er sætari en venjulega með svona glossaðar varir... Þetta gerðist um svipað leyti og ég fékk einkirningasótt sem maður nælir sér víst helst í með að kyssa unga pilta ;) ME

Ingibjörg said...

Ohh hvað hún er yndisfríð. Finnst myndin þar sem hún heldur í klútinn í rúminu sína vinna öll krúttmetin í bókinni, þvílíkt rassgat að finna sér eitthvað öryggisnet þegar hún sefur. Sefur líka svo fallega.

Anonymous said...

Hún er svo mikið krútt...get bara ekki hætt að commenta um það hehe. Gaman hvað hún er hrifin af blóminu sem ég gaf henni og svo er ég sammála Ingu...þvílíkt ofurkrútt á myndinni þar sem hún er sofandi í rúminu.

Kv.
Hulda