Monday, May 12, 2008


Í gær var mæðradagurinn. Ég hélt einhvern vegin að hann væri eitt af þessum amerísku fyrirbærum sem við Íslendingar hefðum á síðustu árum tekið upp frá þeim eins og marga aðra daga. Staðreyndin er víst sú að mæðrastyrksnefnd hélt daginn fyrst hátíðlegan 193 og eitthvað, svo við fórum nokkrar mæðgur og frænkur saman í leikhús. Og hvað var meira við hæfi en mammamamma. Titillinn seldi mér eiginlega verkið í tilefni dagsins. Ég get samt svo kinnroðalaust sagt að allir verði að sjá þetta, allavega allir sem eiga mömmu... og það eru allir. Leikkonurnar eru eitthvað svo hlýjar og góðar og léttar skemmtilegar, verkið þannig að maður skellhlær eina mínútuna og felur tárin hina. Finnst að saumóinn minn eigi að fjölmenna saman, er ekki viss í að það séu margar sýningar eftir. Besta sem ég hef séð lengi, og ég fer frekar mikið í leikhús.

4 comments:

Ingibjörg said...

Já varstu búin að sjá aðalprinsessuna hérna:

http://mammamamma.net/?action=leikhopurinn

Mont mont!!!!

7bba said...

ohhh ég á svona netabrækur.. og ekki af fæðingardeildinni heldur af sjálfsbjörgu... Bcause I love them!!!!:D:D

Anonymous said...

Sjöfn,

Ég trúi ekki að þú hafir póstað þessu inn :) Þetta útskýrir náttúrulega margt!

ME

Anonymous said...

Sjöfn,

Ég trúi ekki að þú hafir póstað þessu inn :) Þetta útskýrir náttúrulega margt!

ME