- Skápurinn í forstofunni er ennþá í rúst
- Ég kann ekki golf
- Skórnir mínir eru ennþá mestmegnis ósorteraðir í hrúgu
- Ég er ekki einu sinni komin með endanlegt topic í mastersritgerð...hvað þá meir.
- Ég kann ekki frönsku.
- Margt, margt fleira.
Uhh það sem ég gerði af því sem til stóð að gera...tók til í geymslunni. Hefði aldrei gerst ef Garðar og brósi hefðu ekki stutt mig áfram. Takk þeir.
Í staðinn hef ég gefið óteljandi brjóst, ferðast út um allt Ísland, hitt aðrar "mömmur" - eitthvað sem ég hefði aldrei trúað að ég skrifaði undir, dáðst að þessu dásamlega barni sem ég á - eins gott að hafa það af að bíða eftir the terrible twos áður en ég geri barneignir að atvinnu, eins og er gæti ég hugsað mér að eiga sjö börn. Þið getið fengið uppskriftina senda í pósti.
Ég er byrjuð að vinna og mér finnst það æðislegt.
1 comments:
þú getur nú æft þig með sögu "the terrible two".. færð allavega smjörþefinn af því tímabili... oooog verði þér að góðu:)
Og hérna uuu .. hvernig í fjandanum ætlaðiru að hafa tíma til að spila golf í fæðingarorlofinu hahaha?:)
Þú ert bara krútt...:*
dásamlegt að hafa þig hérna í Dalshrauninu aftur..!
Post a Comment