Thursday, September 25, 2008

Ég er í mjög karllægum geira og allt það..kann vel við mig þar. Í gær fékk ég bréf sem var stílað á Hr. Helga Sigurrós (Ms. Chandendeler Bong)... honest mistake og allt það, útlendingar geta ruglast - nema hvað að sendandinn var íslenskur. Þetta er kannski afleiðing þess að við ákváðum að taka myndir af starfsmönnum út af Fiskistofuvefnum? Nú eða vísbending um það að ég þurfi að fara gera eitthvað mikið í útlitsmálum.

Uss hvað ég er fegin að ástmaður er kominn heim og barnið hafi tvo foreldra núna. Og svo er ég líka fegin að ég sé ekki einstætt foreldri. Og að það sé að koma helgi.

0 comments: