Thursday, October 2, 2008


Ég eins og örugglega flestir aðrir sem á annaðborð keyra í og úr vinnu hlusta á fréttir á leiðinni. Ég get ekki lýst því hvað mér varð létt þegar ég var að keyra heim í dag, 4 fréttir á og svona 20% fréttatímans fór í að fjalla um kind, sem talin er hafa vestlenska þrjósku þar sem bóndinn er nýfluttur austur, kom fram við leitir um helgina eftir 3 vetur lausagöngu í Stöðvarfirði. Kindin lét svo víst eins og bjáni þegar hún var sett á hús.

3 comments:

Anonymous said...

Hahaha ég missti af þessari frétt!

Kv.
Hulda

Íris Dögg said...

hahaha priceless!

Helga Sigurrós said...

Já, fréttin var gúrka. Mér fannst bara svo merkilegt hvað mér fannst frábært að fá eina svona gúrku og frí frá kreppufréttum! Og hvað er betra en lausafé...