Tuesday, October 7, 2008

Ég er ekki tilbúin til að tjá mig eitthvað sérstaklega um "ástandið". Í ljósi þess að hálftíma gamlar fréttir eru nánast úreltar þá held ég það sé réttast að vera ekki með neinar yfirlýsingar eða sökudólga umleitanir. Mig langar samt að segja að ég hef trú á að aðgerðir stjórnvalda séu þær réttu og ég er ekki sannfærð um ESB aðild hefði eitthvað bjargað fjármálakerfinu. Svo er ég pínu reið ef prinsarnir flýja svo bara land og við sitjum uppi með hærra útsvar....líka bara tilfinning, sjáum til. Ég hef þá vondu tilfinningu að við höfum verið kanarífuglinn í hrinu sambærilegs ástand í öðrum Evrópuríkjum. Vonum samt ekki. En ef svo, þá held ég að það sé ágætt að við höfum okkar auðlindir og getum spyrnt okkur í sjálf - að það þurfi ekki að velja hversu mikilvæg við erum. Allt er þetta nú samt bara pælingar... jákvæða hlýtur að vera að nú er ég í stuði fyrir masterritgerðina mína og hún skal fjalla um ESB og íslenska kvótakerfið.

...svo er ég glöð yfir að verktakarnir okkar voru frekar seinir til og við erum ekki skuldsettari. Ég er líka svo glöð með fólkið mitt. Við ástmaður ánægð í vinnunni okkar, og í fullkomni hreinskilni - þá hlakka ég meira til að byggja húsið upp smá saman og eiga meira í þvi "sjálf" en fara inn í það tilbúið af öðrum. Held ég fókuseri bara á þessa hluti for the time being. Það er hætta á illsku kasti þegar fram líða stundir.

Eplið okkar er farin að standa upp - fyrir nokkru síðan svo sem. Algjör dúlla, en þetta skapar ákveðið vesen. Til dæmis þegar hún á að fara að sofa. Þá stendur hún upp og öskrar og er dauðþreytt en gefur ekki eftir og leggst.Svo við förum inn og leggjum hana óteljandi oft þangað til hún sofnar. Ákvað að leiða gólin í henni hjá mér í smá stund áðan, og hún þagnaði. Kíkti inn og þá hékk hún sofandi á rimlunum. Standandi. Var ég búin að segja að hún er krútt?

2 comments:

María Kristín said...

Alltaf gaman að lesa þig. Vildi bara láta vita af mér;) skoða þig mjög reglulega.
Embla María er mesta krútt í heiminum sé hana alveg fyrir mér á rimlunum hahaha!!

7fn said...

hahhahaha hangandi á rimlunum! snilld:D

en já ég man eftir þessu.. það er lítið gefið eftir þegar maður kann að standa upp.. þrátt fyrir mikla þreytu! en þetta lagast:) sérð það bara að saga sussar á hana á morgnanna því henni langar að sofa lengur:)

knús frá mér og streptakokkanum litla..