Maður getur gert svo tilgangslausa hluti þegar lasin. Þetta dundaði ég mér við í dag.. listi yfir göturnar mínar :)
Miklabraut: Man nú minnst þaðan. Skilst að íbúðin hafi verið frekar lítil, og ég man eftir mér tjóðraðri við staur úti að leika mér ... svona svo ég mundi ekki hlaupa undir bíla.
Kleifarsel: Sweet, sweet Kleifarsel. Það fá ekki öll börn sama stabíla umhverfi og ég.. Þarna bjó ég 14 ár, og foreldrar mínir í rúm 20. Endalausar minningar, ég prófaði öll herbergin í húsinu nema hjónaherbergið. Guð hvað ég vona að börnin mín fái að vera í sama hverfi og sama húsi alla sína bernsku eins og ég.
Víðihóll: Jesús hvað þetta var skemmtilegt tímabil. Fyrsta sambúðin, skemmtilegur meðleigjandi endalaust skemmtileg partý sem verða um alla tíð í minnum höfð. Stundum fantasera ég ennþá um að eiga hús upp í dal. En það verður ekki verra að eiga hús við Elliðavatnið. En allavega ... good times.
Miðstræti: Var í smá stund að venjast því að veifa flugfarþegunum út um eldhúsgluggann hjá mér. Fallegt hús, æðisleg gata en einhvern veginn er þetta tímabil í smá móðu. Fyndið ef maður er að ganga í gegnum erfiða hluti hvernig það tímabil bara gleymist. En þetta var fín millilending.
Óðinsgata: Þarna var bara orðið ansi fínt að búa í miðbænum, bjó með Garðari. Ég hef alltaf haft strákameðleigjendur - merkilegt. Kisan mín strauk alltaf til spákonu sem bjó á næsta horni og vildi alls ekki eiga heima með okkur þarna. Svo tókum við Garðar eina skynsamlegustu ákvörðun seinni tíma og ákváðum að fara í háskólann og skriðum aftur heim í föðurhúsin.
Kleifarsel: Aftur þar, æ það er svo gott hjá mömmu.
Hlíðargata: Fór í HA og komst ekki inn á stúdentagarðana undir eins. Jóa frænka dekraði mig út í gegn. Mistökin voru eiginlega að flytja frá henni og á garðana þegar að það losnaði þar. Hjá Jóu er gott að vera ... þetta var ca hálft ár.
Klettastígur; Alveg spes að búa í íbúð með 3 öðrum en vera samt bara mest inn í herbergi. Ég er meira svona búa ein eða með einum manneskja. Héldum samt alveg góð partý :)
Hólmgarður: Þetta er svona hálf týnt tímabil líka, ef ég man rétt var ég í einhverjum einkalífsflækjum þarna líka. Merkilegt alveg, heilinn í mér hlýtur að vera fullkominn að útiloka svona bara. Þetta var líka alveg skítaíbúð.
Gunnarsbraut: Æ hvað mér þykir vænt um Miklu mína. Mikil saga, margra saga og fyrsta íbúðin MÍN. Á endalausar minningar þar... litla þrönga eldhúsið, Diljá, guð hvað mér þótti vænt um fataherbergið mitt. Svo skýrar minningar af fyrstu kynnum okkar ástmanns og notalegra stunda á Miklu... Good times :)
Battersea Rise: Skemmdi tequila fyrir mér fyrir lífstíð (var nú samt komin vel á veg með það sjálf fyrir). Helvítis mexíkanski veitingastaður, bilaða hitakerfi, hávaðasama umferðargata .. Íbúðin svo sem fín. En ekki fyrir okkur.
Prince of Wales: Elsku fallega London íbúðin mín, óléttan okkar, garðurinn okkar.. skrambans stigarnir. En æðisleg íbúð, og á betri stað í London er ekki hægt að búa, því lofa ég ykkur. Stundum var ég ekkert alltof sátt við að vera úti, en í retro þá var þetta svo góður tími og alltaf var ég hrifin af íbúðinni.
Stíflusel: Við erum búin að eiga svo notalegt tæpt ár hérna. Íbúðin á alltaf eftir að eiga sérstakan stað í hjartanu, hingað komum við með Emblu Maríu í fyrsta sinn heim og hérna höfum við átt mikið af ljúfum stundum.
Man einhver eftir öllum þessum stöðum mínum? Næsti viðkomustaður er Vindakór. Vonum að það sé gæfuspor og síðasta stopp fyrir Dimmuhvarf. Shæse hvað ég hef flutt oft.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
ég held að ég man ekki eftir Hólmsgarði og Miðstræti? hvenær varstu þar??
Já þú hefur sko flutt oft og öfunda ég þig ekki af því.
Ég vona nú að flutningurinn núna gangi vel og það verði svo næst seinasti flutningurinn ykkar!
Elskan mín ég man meira að segja eftir einum stað enn.Þú bjóst eitt sumar í hjólhýsi í Skagafirði,ég kom meira segja í heimsókn þangað og gisti.Viss um að þú ert að flytja í næst síðasta sinn,allavegana fyrir svona næstu 20 ár.Mamma.
Hvernig gat ég gleymt hjólhýsinu! Það var æði... inn í miðju hestastóði - talandi um að vera bara eðlilegur. Bjuggum mest fimm í því og héldum ótal 20 manna dansipartý, grillpartý og höfðum það gott. Það hafa ekki margir átt heima í hjólhýsi með viðbyggðum palli :) Stórkostlegt sumar í Skagafirðinum alveg hreint!
María, þú bjóst líklegast í Brasilíu þegar ég var á Miðstræti og svo finnst mér líklegt að þú hafir verið fyrir vestan þegar ég var í Hólmgarði.
Post a Comment