Sjáið ástmann minn http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/11/samkomulag_nadist_vid_holland/. Það sem ég er stolt af honum, en mikið verður nú gaman að hafa hann aftur heima við þegar þessu linnir.
Vona að botninum í þessu "ástandi" sé fljótlega náð svo hægt sé að spyrna í aftur. Mér fannst ég stundum hafa misst af einhverri lest í uppsveiflunni og hugmyndir vera fastar. Alveg er ég sannfærð um að tími nýsköpunar og mikils krafts (þegar áfallið hefur gengið yfir í öllum sínum myndum) sé að renna upp. Fátt er svo með öllu illt...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment