Wednesday, October 15, 2008
Við erum að fara að flytja aftur..enn og aftur. Við erum semsagt búin að ákveða að ýta ekki fast á húsbyggingu núna í ljósi efnahagsástands og tíminn okkar hér í Stífluseli að renna út. Þannig að við erum búin að finna fína íbúð í kórunum (hverfinu okkar nánast :) )og erum bara að fara að flytja á næstu dögum. Mér finnst ég bara alltaf vera að flytja, til dæmis hef ég flutt nokkrum sinnum síðan ég kom á þetta vefsvæði.. sem má lesa um í eldri færslum. Dagurinn bara týndist í að lesa gamlar færslur :) Annars er ég hundlasin heima og er að spá í að gera kannski bara svona smá yfirlit yfir "göturnar mínar" ...sjáum hvað verður úr því.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
það er eins gott að þú bloggir um svona viðburði.. ég hafði ekki hugmynd um að þú værir að flytja!
láttu þér batna:*
Já, þetta bara gerðist svo hratt!
Ætla að reyna að harka að mér á morgun og druslast í vinnuna.
hlakka til að fá þig í kórana :) ætla að fara að sanka að mér hvítvíni svo ég eigi alltaf eina kalda ef gesti ber að garði ;)
kv. Dæja
Post a Comment