Thursday, November 6, 2008

Um daginn var ég að spá þegar ég skrifaði um flutninga að minnast á að ég hefði verið ónothæf í síðustu tveim sökum veikinda annarsvegar og 9.mánuðs meðgöngu hinsvegar og það yrði fróðlegt að sjá hvort ég yrði ekki veik núna. Ég ákvað samt að skrifa þetta ekki, því ég vildi ekki jinxa það. Síðasta miðvikudag byrjaði svo EMÆ að æla, ástmaður slóst með í för á fimmtudag og ég fór heim á veik á hádegi á föstudag. Við vorum svo lasin að mamma þurfti að taka stelpuna því við gátum ekki sinnt henni... hressandi. Þrátt fyrir þetta fluttum við nú allt á sunnudaginn, ég þreif út stífluselið, smá smotterí eftir í geymslunni og það var bara unnið þrekvirki. Á rúmum þrem vikum frá því við fréttum að við þyrftum að flytja erum við því búin að finna okkur íbúð, flytja og nánast koma okkur fyrir - geri aðrir betur! Er bara nokkuð ánægð með okkur:) Enda erum við æðisleg.

Nýja íbúðin er voða fín, ég er með víðáttubrjálæði - hef aldrei búið svona rúmt. Það er bara eftir borvinna og hana ætla ég ekki að gera sjálf og svo bara þrífa. Og þá fer ég að bjóða í hugguleg boð. Takk elsku allir sem hjálpuðu okkur...mamma, María, Ævars vinir, Lísa, Petra, Rán, Garðar, Bjössi og Stjáni að ógleymdri Herborgu sem tók eplið að sér (og fékk ælupest að launum) - það er ótrúlegt hvað við eigum fáranlega marga frábæra að.

Svona í lokin...þá held ég að Embla María haldi að hún eigi heima í Ikea. Náttúrulega hálfrugluð á þessum tætingi öllum, ég hef svo í vikunni sótt hana og farið að stússast eitthvað sem vantar á meðan verið er að brasa heima. Stússið snýst aðallega um að redda hlutum í Ikea, svo er líka svo fínn matsalur þar (bauð ástmanni þangað út að borða á mánudaginn..grand á því) sem selur kjötbollur sem eplinu finnst nú góðar. Í gær kom ég svo inn í Ikea með snúllu og systu með mér, barnið lifnaði öll við og skríkti af gleði. Líklegast ályktað svo að nú væri hún komin heim og fengi að borða.

0 comments: