Wednesday, November 12, 2008


Það vantar eitt Emblu Maríu blogg...snillingurinn sem barnið er.

Hún er písl. Hún borðar eins og hestur, hreyfir sig stöðugt og er alltaf að og bara þyngist ekki neitt! Sem er ótrúlegt miðað við hvað barnið borðar...til að mynda ól Lísa vinkona hana á súrum gúrkum í pössun á laugardag, og það varð víst veruleg frústrasjón þegar átti að taka hana af henni. Sem er efni í annan pistil, að daman er farin að sýna skap sitt. En ég hef líka alltaf sagt að það sé leiðinlegt hvað börn stækka hratt og ætla bara að njóta þess að vera með "infant" aðeins áfram. Svo þroskaðist hún um svona mánuð á síðustu viku- eftir óværu tengda tanntöku (það komu 4 í einu) og gubbupest birti til og framfararnir svo miklar núna að ég óttast að ég sé að fara að ferma í næstu viku. Ha?? og stór spurnaraugu eru klárlega frasi vikunnar. I gær sótti ég hana til dagmömmunnar og hún fór að grenja þegar ég tók hana. Vei. Ég hef um tvennt að velja: 1. Verða fúl yfir að barnið sé hrifnari af dagmömmunni en mér (þetta er náttúrulega pínu vandræðalegt þegar ég sæki hana). 2. Gleðjast yfir því að henni líði vel þar sem hún eyðir bróðurpart vökutíma síns (sem er útaf fyrir sig þyngra en tárum tekur), og hversu skynsöm hún er að taka það ekki nærri sér að vera í dagvistun. Skynsemin fær að ráða. Annars man ég að Máni Freyr var svona, vildi alltaf vera með öllum og ekki sérstaklega háður foreldrum sínum - kannski að þetta fylgi litlum píslum.

Nú ætla ég að fullyrða að ég byrji í ræktinni í kvöld - þá er kannski líklegra að ég drullist. Mynd dagsins er EMÆ og súra gúrkan, bendi sérstaklega þessa fögru brjóst Elísabetu vinkonu minnar. Verst að þau eru upptekin.

5 comments:

Íris Dögg said...

Gaman að sjá Emblu Maríu blogg. Kíki líka reglulega á myndasíðuna hennar. Væri gaman að fara að sjá nýjar myndir:) Gott að það séu fleiri písl sem sýna skap sitt. Var farin að halda að ég ætti einu frekjuna hehe:)

Lísa said...

Mistókst greinilega eitthvað að kommenta hér um daginn hjá mér. En, við brjóstin höfðum bara gaman af EM. Hún var ógeðslega fyndin með gúrkuna, ég sem ætlaði að stríða henni, hélt henni þætti þetta ógeð eins og flestum. Næst gef ég henni ólívur og campari.

Anonymous said...

Æi hún er sammt bara slgjört æði þótt hún sé písl ,eru ekki alveg nógu margir feitir,þetta kemur með tímanum en allavegana fitnar hún ekki af gurkum hvort sem þær eru súrsaðar eða ferskar því þær eru bara vatn. Knús á ykkur.amma Magga

Helga Sigurrós said...

Ekki campari Lísa það er ógeðslegt, erum við ekki meiri svona kampavínspíur?

Já, súra gúrku genið hefur hún allavega ekki frá mér mamma. En hún fitnar örugglega frekar af krybbrauði í kvöldmat eða dísætum kökum eins og ömmurnar gefa henni :)

Anonymous said...

Saga tók að sér að vera bolla, það verður gaman að sjá hvernig næsta barnabarn verður... er pabbi eitthvað að dala í spámennsku sinni? hmm...

hún er greinilega lík frænku sinni ... saga borða bara "hráa" sveppi!

knús frá eggjaranum:*

sjöbba