Wednesday, February 27, 2008






Sjóðheitar fréttir... as if, það er af sem áður var. Hér unum við okkur bara í rólegheitum fjölskyldulífsins og ég er orðin svo ráðsett og ábyrg að sorinn er á pásu, og það er eitthvað minna gaman að skrifa helgispjöll.

Flökkueðlið er nú samt farið að segja til sín aftur (hver veit nema kjafturinn lifni við að nýju, ég er öll að verða eðlileg) og ég var að verulega refsa visakortinu og um leið styrkja express (sem er með frítt fyrir ungabörn og eðlilegt breytingagjald og breytanleg fargjöld, púh á Icelandair). London í viku í næsta mánuði við fjölskyldan, það væri óskandi að það væri skemmtiferð. En verður bætt upp með 9 daga skemmtiferð til Köben í maí með skemmtilegum stelpum og börnum, makar verða með síðustu dagana. Á sama að tíma að ári deitið verður svo í NY i haust en það verða bara við ástmaður. Fjölskyldumeðlimir geta byrjað að slást um að fá prinsessuna í nokkra daga. Fáum franska vini í viku í sumar og mig langar með þau vestur, auk þess hef ég tryggt tjaldvagn fyrir landsmótið (er víst orðin of fín fyrir tjald) og skemmtilegustu fréttir vikunnar eru þær að bíllinn okkar er kominn sem svooo getur dregið tjaldvagninn, með nýrri leðurlykt og ég er ekki frá því að mér finnist ég eitthvað minna herfuleg þegar ég ek um á þessum eðalgrip en ég annars upplifi mig þessa dagana. Helst í fréttum er samt það að ég er um það bil að fara yfir um.

Embla María er að verða eins og fermingarbarn. Rifnar út, það er skoðun á föstudag og ég hlakka til að fá staðfest að hún braggist vel. Hún er farin slá í dótið sitt í ömmustólnum (er nú ekki viss í að hún fatti það), einstaka sinnum skríkir hún þegar hún er mjög kát sem er alveg nýtt. Algjört yndi og fer sjálf að sofa á kvöldin og sefur allar nætur - með einum sjúss þó. Við vorum í Giljagaur síðustu helgi og hún kippti sér ekkert upp við nýjan stað - bara hélt sinni rútínu. Eitt á hún þó sameiginlegt með mér, og það er það eina sem ég hef fundið hingað til, en það er að henni finnst afskaplega gott að borða en mikið vont að vera södd. Litla skinnið á það til að taka heilu rembingskvöldin alveg þannig að við erum farin að rembast með henni og þá er ekki allra að tjónka við hana. Hún er nú líka með smá mömmusýki - mér finnst það bera vott um greind. Ef að bara einn getur fætt þig, þá hlýturðu að halda þig við hann.

Þar með er tilkynningaskyldunni lokið í bili. Get þó bætt við að húsið gengur vel núna eftir leiðinda veður og er risið - nú er bara að loka því og byrja inni. Myndirnar eru af heimasætunni sína listir sínar á 8. viku, óróin næstum jafn skemmtilegur og ég þessa dagana ;), með Söru í bústað, smá sýnishorn af kvöldmatartíma á heimilinu og fleira og stöðuna á Dimmu í dag 27. feb.






Saturday, February 16, 2008






Það sem eitt lítið barn getur verið yndisleg. Hún er strax skemmtilegri en margir sem ég þekki :) Ég held að það sé ekkert í þessum heimi sem við foreldrarnir mundum skipta út fyrir þessar vikur með Emblu Maríu. Núna er hún farin að vakna brosandi (hefur það frá móðurinni...), spjallar með hjali, vaka lengur í einu, og sofa lengur í vagninum (fór að sofa úti rúmlega 4 vikna) sem er gott fyrir lærandi mig, fara sjálf að sofa á kvöldin etc. Mér varð smá illt í hjartanum því undanfarnar 2 vikur hefur hún rembst mikið og vaknað við að vera í keng, keypti svo þessa hræðilegu miniform dropa sem mæður hafa notað í gegnum tíðina án átaka en eru voða umdeildir í dag. Læknir og hjúkka sögðu í lagi svo ég er bara afskaplega glöð að vera komin með væra góða barnið aftur.

Það dylst engum að Embla María er eins snýtt frá pabba sínum. Það mætti halda að hann hafi skaffað eggið líka. Ég sé ekkert af mér í henni, stundum smá af Maríu og þegar hún dregur augað í pung minnir hún mig á pabba. Annars er hún bara Ævars familía. Ein í leikfiminni sagði "hún er nú lík þér"..svo kom Ævar og hún sagði "nei þú átt ekkert í henni". En ekki nóg með að hann eigi hana útlitslega (sem er í lagi, svona fjallmyndalegur ;) ) að þá hefur hún takta frá honum... legg hana fyrir framan spegil í þessum margræddu leikfimistímum, og þar unir hún sér í 3 korter (ég er að segja ykkur það hún er það mikið yndi), skælbrosandi og hjalandi yfir spegilmyndinni af sjálfri sér. Þeir sem þekkja Ævar sjá samlíkinguna ;-)

Getur það talist flótti ef klefinn manns er hafður opinn, þú ferð inn í geymslu og sækir þér reipi og rennir þér út um gluggann á ganginum? Ég er bara hissa á að fleiri fangar séu ekki á ferðinni.

Annars bara fínt takk. Á milli þess sem ég dáist af litlunni og dásama þá grenja ég yfir þessum lærdómi ...eeen þetta er handan við hornið.



Wednesday, February 13, 2008

Hið fullkomna ráð til að verða stúrin og úrill er að sofa ekkert yfir nóttina, fyrst fyrir manni og svo fyrir barni, og sofa svo yfir sig í það sem maður ætlar að gera um morguninn.

Það er svo langt síðan að ég hef farið í vont skap að ég var búin að gleyma hvað það er leiðinlegt og mikil tímasóun.

Tuesday, February 12, 2008

Núna eru komnar tæpar 6v síðan ég fæddi barn. Maður á víst að vera orðin nokkuð söm eftir 6v sem stenst svo sem alveg. Er samt ekki alveg að "fíla" þennan lina líkama og ég var orðin svolítið einmana svona heima alltaf þó að fjlsk okkar séu duglegar að kíkja. Samt er Ævar í orlofi og ég er að læra. Þannig að við mæðgur förum núna i ungbarnanudd einu sinni í viku bara svona upp á grínið, og svo förum við í líkamsrækt 3x í viku. Núna má maður sko taka beibíin með sér og þykir voða flott. Mér finnst ég samt pínu verri mamma en hinar að þurfa að vera svona á ferðinni, ég er bara svo vön því að vera á fullu. Ég get samt ekki hugsað mér að fara helst neitt frá henni og líður bara ekkert þægilega þegar ég fer ein eitthvað, ætlaði svoo mikið ekki að vera þannig.

Ég er loksins búin að drusla mér í að læra, eins og mér finnst ég tilbúin í margt þá finnst mér svo ósanngjarnt að ég þurfi að vera eyða þessum tíma í að læra, og það gengur vægast sagt hægt. Þó hún sé með afbrigðum róleg hún litli Embill fyrir utan þessa hálftíma rembinga sína eftir gjafir, þá þarf ansi mikið að huga að henni og það slitnar í sundur allt annað sem maður ætlar að gera. Svo er ég líka með froðuheila þessar vikurnar - en mér finnst samt rosalega gott að vera farin að nota hann aðeins aftur. Ég þarf nú samt eiginlega að ljúka þessu með stæl ég er með svo fínar einkunnir í því sem ég var búin með áður en ég fór í orlof svo það er bara harkan sex.

Annars ef ég er spurð hvað sé í fréttum spyr ég í móti af hægra eða vinstra brjóstinu svo svona verða færslurnar næstu misserin :) Vissuð þið til dæmis að það að vera með barn á brjósti tekur svona 6-8 klst á sólarhring? Kannski ekkert skrýtið að manni finnist manni verða fátt annað úr verki.

Monday, February 4, 2008






Embla María er mánaðargömul síðan í fyrradag. Hún braggast dag frá degi, stefnir hraðbyri í þungavigtarflokkinn með Sögunum sem við þekkjum en litla hlassið þyngdist um kíló á mánuði. Akkúrat þriggja vikna byrjaði hún að hjala og hún nánast syngur í dag. Við gætum sagt að hún hafi brosað frá fæðingu en það eru nú bara magakitlur. Síðustu tvær vikur hefur hún svona glott út í annað en núna er hún sko farin að brosa með öllu andlitinu á vel völdum stundum. Það er hætt við að ég komi til með að láta allt eftir henni þegar sá svipur er á henni. Hún er nær alltaf vær og góð, í gær tókst okkur að ofbjóða henni í fyrsta sinn af einhverri alvöru. Við fórum semsagt í heimsókn til vinar og svo í matarboð og þegar við komum heim komu gestir. Allt í einu fór hún bara að orga eins og enginn væri morgundagurinn og ég gat ekkert gert og fór nánast að skæla með henni. Á endanum gafst ég upp og fór bara inn í herbergi og upp í rúm og það var eins og við manninn mælt - smá kúr í rólegheitum og hún hjalaði næsta hálftímann og sofnaði svo. Við erum svo glöð og heppin með hana.

Annars fannst mér tilvalið að bjóða öllum í bollukaffi í dag svona fyrst við erum í orlofi. Í gær bjó ég til deig og það enduðu tvær plötur í ruslinu. Þannig að ég ákvað að nota Vilko og í morgun fóru þrjár plötur í ruslið. Ástmaður er útí búð núna að kaupa allsberar bollur, ég hlýt að geta sett súkkulaði og rjóma á þær sjálf. En ég sver að þetta er ofninn ekki ég!! Við erum einmitt að velja heimilistæki í Dimmuhvarfið og það er hægt að fá stafræna ofna sem eru með hjálparkokk. Þá semsagt geturðu sagt ofninum hvað þú ert að elda eða baka og hann segir þér hitann og tímann. Vorum að velta fyrir okkur hvaða hálfvitar þurfi svona ofn...

Ég hlýt að byrja að læra á morgun.