Jæja, mér er ekki lengur viðbjargandi og hef opnað safnsíðu fyrir Emblu Maríu - www.barnanet.is/emae . Er með prufutíma í mánuð og sjáum hvernig okkur fellur þetta í geð. Þrýstingur hefur verið töluverður, taki til sín sem vilja. Verst þykir mér þó að nú er ég spurð hvenær fór hún að gera og hvenær hitt og ég er strax farin að gleyma...af hverju gaf okur enginn dagbók barnsins? Þetta kannski spornar við því.
Allavega vonum að mamma sjái þetta ekki fyrr en hún kemur frá Færeyjum, aumingja allir þar annars sem þurfa að skoða. Svo verður fróðlegt að sjá hvað dettur hingað inn þar sem mest hefur þetta nú snúist um óléttu og stelpuna síðan það kom upp.
Thursday, May 15, 2008
Monday, May 12, 2008

Í gær var mæðradagurinn. Ég hélt einhvern vegin að hann væri eitt af þessum amerísku fyrirbærum sem við Íslendingar hefðum á síðustu árum tekið upp frá þeim eins og marga aðra daga. Staðreyndin er víst sú að mæðrastyrksnefnd hélt daginn fyrst hátíðlegan 193 og eitthvað, svo við fórum nokkrar mæðgur og frænkur saman í leikhús. Og hvað var meira við hæfi en mammamamma. Titillinn seldi mér eiginlega verkið í tilefni dagsins. Ég get samt svo kinnroðalaust sagt að allir verði að sjá þetta, allavega allir sem eiga mömmu... og það eru allir. Leikkonurnar eru eitthvað svo hlýjar og góðar og léttar skemmtilegar, verkið þannig að maður skellhlær eina mínútuna og felur tárin hina. Finnst að saumóinn minn eigi að fjölmenna saman, er ekki viss í að það séu margar sýningar eftir. Besta sem ég hef séð lengi, og ég fer frekar mikið í leikhús.
Friday, May 9, 2008

Í tilefni föstudags, og próflokadjamms hjá mörgum í kringum mig.
Annars fæddist enn einn strákurinn i kringum okkur í nótt þegar Eva harkaði frá sér syninum nokkrum dögum fyrir áætlaðan. Það er hætt við að Embla María verði boltastelpa, enda bara betra :) Til hamingju elsku Eva, Mikki, Emma og Aþena (vá þetta verður runa, fáið extra stórt jólakort næst)
Wednesday, May 7, 2008
Af hverju ætli miðvikudagar séu alltaf uppáhaldsdagarnir mínir? Hér höfum við það fínt, nóg að gera við að leita að afmælisgjöfum með misjöfnum árangri, er samt búin að finna fullt af fallegum hlutum fyrir mig (og kaupa) :) Miðað við fjölda afmælisdaga í tengdafjölskyldunni minni þessar vikurnar fer ég að hallast að því að það sé einhver ákveðin mökunartími á árinu sem ég hef eitthvað misreiknað. Enda reikningur aldrei verið mín sterkasta hlið. Læt fylgja með video af Emblu Maríu, að syngja,ræða málin eða hvað maður kallar þetta við Ævar. Hún hefur erft söngröddina frá pabba sínum, hljóðin maður minn. Og já, það er alltaf svona sorglegt þegar hún missir tærnar.
Friday, May 2, 2008
Það er alltaf verið að spyrja mig hvort það sé ekki mikil viðbrigði að eiga barn- ég skil ekki af hverju, en það er það svo alls ekki. Þetta gerist einhvern vegin allt bara fáránlega eðlilega og er ótrúlega sjálfsagt. Í dag er Embla María búin að vera til í 4 mánuði og ég er bara búin að finna einn galla sem er tvíþættur, annars vegar draslið sem fylgir inní íbúðinni og hins vegar þessi endalausi farangur ef maður vogar sér út úr húsi - en þetta venst svo það er vel yfirstíganlegt. Annars var aftur kvartað yfir myndaleysi, mér finnst ég alveg nýbúin að hlaða inn. Byrjum á myndum af fólki að fylgjast með Liverpool tapa.

Ekkert yndislegra en eplið nývöknuð, annarsvegar með far by uppáhaldsdótið sem er blómið frá Huldu og hins vegar að sleikja sólina út í vagni.

Og með gestum, þessi fína mynd af afa með opin augun. Ragnar Bjarki kom svo í smá pössun og þau þurftu að skoða hvort annað vel. Munurinn á þeim sannar næstum "árið" sem er á milli þeirra....litla örverpið mitt ;)

Búin að finna á sér táslurnar, mikið sport.

Embla María og mamma að knúsast, þarf einhvern tíma þegar mamma stoppar almennilega við að taka seríu af þeim saman.

Heldur ennþá alltaf í eitthvað þegar að hún sefur, ef það er ekki rimlinn a vöggunni þá það sem hún finnur laust nálægt sér.

Saga þarf að prófa líka, það er bara fyndið að fylgjast með þeim saman. Alltaf samt ótrúlega góð við litla skrípið :)

Viðbót 3.maí: Dóttirin eltist og þroskaðist um allt of mikið núna rétt áðan þegar við foreldrareiningar lögðum hana til svefns í barnarúminu í fyrsta sinn. Það var eiginlega bara pínu trist að taka vögguna út...

Subscribe to:
Posts (Atom)