Monday, July 21, 2008

Úff ég gæti skrifað svo ótal margt ótrúlega væmið um þessa mynd. En sjáið fallega fólkið mitt, ég alveg dýrka þau :) Hef að vísu sagt að mér þætti Embla María líklegast eðlilegri í batman búning en þessum rosa kjól, en hún er samt algjört rassgat í honum. Ástmaður...þarf að segja meir?

Ég er bara rétt að minna á mig...vinna að hefjast innan skamms sem mér finnst ótrúlega spennandi (minna spennandi að setja ungann í dagvistun, en gaman hjá mér að fara af stað). Helsta kvíðaefnið er hvenær ég þurfi að vakna á morgnanna, við mæðgur erum að veltast til svona 11 þessa dagana. Erum búin að vera út um allar trissur. DK, Landsmót, Vestfirði,Geysir og Gullfoss, bústað hér og þar, minnst heima allavega. Æðislegt sumar, annað verður ekki sagt. Nokkrar myndir frá ofangreindum viðkomustöðum hanga með. Að lokum, hver getur ráðið eftirfarandi tilvitnun.. (ein af mínum uppáhalds)
"I think I have monogamy. I caught it from you."
Verðlaun verða ákveðin eftir vinningshafa. Coming up this week: 29 ára afmælisdagurinn, ég er bara spennt :)