Annars kann ég alltaf lúmskt vel við svona hressilegar vikur. Af okkur er það helst að frétta að snúlla varð eins árs. Hún fagnaði því með RS vírusnum. Svo er hún farin að labba, og ég get fullyrt að það er ekkert krúttlegra en litli brauðfóturinn að staulast hérna á milli manna og hluta. Það sem þetta barn bræðir mig í gegn statt og stöðugt :)
Svo var ég mikið að velta fyrir mér hvort mér þætti leiðinlegra að taka bensín eða versla um daginn. Í kvöld hef ég sannreynt að mér þykir ennþá leiðinlegast að þvo þvott. En mikið óskaplega finnst mér notalegar þessar mínútur sem við erum að græða á dag í birtu, er núna farin að taka eftir lengri degi.
Svo er það skíðaferð til AkureyrIS með hluta Friðrikka og ástmanna coming up... veiiii!